SBA með áætlunaakstur milli Dalvíkur og Akureyrar

SBA Norðurleið hefur tekið við áætlunarakstri milli Dalvíkur og Akureyrar af Trex en samningur Trex rann út núna um áramótin. Vegagerðin bauð leiðina Ólafsfjörður - Dalvík - Akureyri út og var SBA Norðurleið með lægsta tilboðið. Samningurinn gildir í eitt ár eða fram að áramótum 2009-2010. 

Upplýsingar um áætlunarferðirnar er að finna á heimasíðu SBA Norðurleiðar, www.sba.is en einnig er hægt að smella á tímatöfluna hérna.