Sannkallaðir sprengjutónleikar að kvöldi Fiskidagsins Mikla

Sannkallaðir sprengjutónleikar að kvöldi Fiskidagsins Mikla

Samherji kynnir í samstarfi við Rigg viðburði, Fiskidaginn Mikla, Samskip, Exton og Björgunarsveit Dalvíkur:

 Fiskidagstónleikarnir 2019 verða haldnir sem fyrr við hafnarsvæðið á Dalvík 10. ágúst nk. Hljómsveit Rigg viðburða leikur undir hjá þjóðþekktum söngvurum sem flytja sín vinsælustu lög í útsetningum Ingvars Alfreðssonar. Gestgjafar eru sem fyrr heimamennirnir Friðrik Ómar, Eyþór Ingi og Matt Matt.

Gestasöngvarar Fiskidagstónleikana 2019 eru:

Svala, Valdimar, Auður, Páll Óskar, Sigga Beinteins, Grétar Örvarsson, Hr. Hnetusmjör, Þorgeir Ástvaldsson, Eyjólfur Kristjánsson og Bjartmar Guðlaugsson.

Í kjölfar tónleikana verður glæsileg flugeldasýning.

Allir hjartanlega velkomnir.

Hljómsveitarstjórn: Ingvar Alfreðsson
Dansar: Birna Björnsdóttir
Hljóð: Haffi Tempó
Lýsing: Helgi Steinar
Grafík: Pálmi Jónsson
Verkefnastjórn Exton: Steinar Snæbjörnsson
Verkefnastjórn Rigg: Haukur Henriksen
Sviðsetning og yfirumsjón: Friðrik Ómar