Samstarf Tónlistarskólans og leikskólanna

Samstarf Tónlistarskólans og leikskólanna

Tekin hefur verið upp sú nýbreytni hjá Tónlistarskóla Dalvíkur að bjóða upp á forskólakennslu í elstu bekkjum leikskóla. Þuríður Sigurðardóttir leikskólakennari hefur verið ráðin til að fara vikulega í alla leikskóla í Dalvíkurbyggð, syngja með krökkunum, þjálfa þau í rytma og öðrum undirstöðuþáttum undir frekari tónlistarkennslu.

Menningar- og viðurkenningasjóður menningarráðs Dalvíkurbyggðar styrkti þetta verkefni um 250 þúsund kr sl. vor og verður því haldið áfram fram að áramótum í það minnsta að sögn Kaldos Kiis skólastjóra. Kaldo segir öllu máli skipta fyrir frekara tónlistarnám að þessi grunnur sé kominn og hlúð sé vel að forskólakennslunni.