Samsöngur á fiskisúpukvöldinu

Á fiskisúpukvöldinu 6. ágúst, þegar vináttukeðjan er, er áætlað að syngja samsöng með Leikbæ og Krílakoti. Lögin sem sungin verða eru Vinur minn, Myndin hennar Lísu og Fiskurinn hennar Stínu. Verið er að æfa lögin í leikskólanum þessa dagana. Textarnir hafa verið sendir sem viðhengi í gegnum mentor.

Við viljum biðja þá foreldra sem geta, að koma með börnin sín og leyfa þeim að taka þátt í söngnum. Börnin eiga að mæta á Krílakot kl. 17:30 til að taka æfingu. Söngurinn hefst síðan um kl. 18:05.

Frábært væri ef öll börnin gætu komið í lopapeysum.