Samningur undirritaður við Leikfélag Dalvíkur

Bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, Svanfríður Inga Jónasdóttir, undirritaði á föstudaginn sl. samning til þriggja ára við Leikfélag Dalvíkur. Samningurinn tók gildi þann 1. janúar 2008 og gildir til 2010. Leikfélagið hefur í gegnum árin lagt metnað sinn í uppsetningu á fjölbreyttum leikverkum, nú síðast Sölku völku sem hlaut mjög góða dóma áhorfenda. Á meðfylgjandi mynd má sjá formann leikfélagsins, Sólveigu Rögnvaldsdóttur, undirrita samninginn ásamt bæjarstjóra.