Sameiningu heilbrigðisstofnana frestað

Heilbrigðisráðherra hefur gefið út tilkynningu er varðar frestun sameiningar heilbrigðisstofnana. Þar segir að í ljósi ríkjandi ástands í þjóðfélaginu hafi heilbrigðisráðherra ákveðið að fresta fyrirhuguðum sameiningum heilbrigðisstofnana og heilsugæslustöðva til 1. júlí 2009. Ráðherra hafði áður boðað að sameina ætti heilbrigðisstofnanir í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð um áramót.

Frétt tekin af www.dagur.net