Sameiginlegt afmæli ágústbarna

Sameiginlegt afmæli ágústbarna

Í dag héldum við sameiginlega afmælisveislu fyrir börnin sem áttu afmæli í ágúst. Veislan var fyrirhuguð síðastliðinn föstudag en vegna veikinda bæði barna og kennara ákváðum við að fresta henni um viku. Börnin buðu upp á ávaxtaspjót að vanda og við sungum saman fyrir þau afmælissönginn. Við óskum þeim Leu, Jaden, Jermaine, Rakel Báru, Davíð Þór og Roxönu innilega til hamingju með afmælið.