Ruslatunnur á víðavangi

Þeir íbúar sem ekki finna ruslatunnur sínar eftir rokið sem varð síðastliðinn fimmtudag eru vinsamlegast beðnir um að láta umhverfisstjóra vita og hann mun sjá um að koma með nýjar tunnur. Eins eru þeir íbúar sem finna ruslatunnur á víðavangi vinsamlegast beðnir um að láta umhverfisstjóra vita svo hægt sé að koma þeim til réttra eigenda. Umhverfissstjóri er Valur Þór Hilmarsson í síma 844 0220.