Rusl tekið á morgun á Dalvík

Á morgun, miðvikudaginn 15. ágúst, verður tekið rusl á Dalvík, svört tunna. Að öllu jöfnu hefði ruslið ekki verið tekið á morgun heldur í næstu viku en vegna þess hve mikið sorp hefur safnast upp vegna Fiskidagsins mikla verður svarta tunnan tekin á morgun, miðvikudag. Í staðinn verður ekki tekið rusl í næstu viku.