Rotþróarhreinsun 2012

Rotþróahreinsun 2012


Dagana 18.-23. júlí verður holræsabíl frá Hreinsitækni ehf. við tæmingu á rotþróm í sveitarfélaginu. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að koma á svæðisbundinni tæmingu þannig að allar rotþrær séu tæmdar á þriggja ára fresti. Í ár er ætlunin að hreinsa rotþrær í vestanverðum Svarfaðardal, allt frá Dalvík fram að Koti. Ef einhver sem ekki er á þessu svæði er með rotþró sem þarfnast tæmingar þá er viðkomandi beðinn um að láta vita á bæjarskrifstofu sem fyrst.