Reiðnámskeið 8.-15. júní

Hestaþjónustan Tvistur og Hestamannafélagið Hringur bjóða upp á reiðnámskeið í sumar fyrir börn og unglinga í Hringsholti við Dalvík.
Námskeið verða dagana 8. - 15. júní, 6. - 13. júlí og 18. - 25. ágúst. Kennt er á virkum dögum, 2 klst. í senn í sex skipti.

Fyrsta námskeiðið hefst því í næstu viku, 8. -15. júní. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Hjörleifsson og verð er 12.900 kr. Veittur er systkinaafsláttur.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 466 1679 og 861 9631.