Rakel Sara 5 ára

Rakel Sara 5 ára

Þann 16. janúar varð Rakel Sara 5 ára. Af því tilefni bjó hún sér til glæsilega kórónu sem hún bar á afmælisdaginn. Hún bauð börnunum upp á ávexti í ávaxtastundinni og flaggaði íslenska fánanum. Svo sungum við afmælissönginn auðvitað fyrir hana. Við óskum Rakel Söru og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með afmælið.