Raivo 5 ára

Raivo 5 ára

Raivo varð 5 ára í dag, 18. september. Hann bjó til glæsilega lestarkórónu í tilefni dagsins. Hann bauð svo upp á ávexti í ávaxtastundinni, flaggaði íslenska fánanum og börnin sungu fyrir hann afmælissönginn. Við óskum Raivo og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.