Ráðning verkefnisstjóra í Pleizið

Magnús Sigurjón Guðmundsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri við félagsmiðstöðina Pleizið. Hann hefur langa reynslu í vinnu með börnum og unglingum í félagsmiðstöðvum í Reykjavík en hann hefur einnig séð um rekstur félagsmiðstöðva í Grafarvogi í Reykjavík. Magnús er með BA próf í tómstunda- og félagsmálafræði frá HÍ. Hann er kvæntur Jenný Hildi Jónsdóttur en þau eiga tvö börn. Magnús mun hefja störf í lok ágúst.