Ráðning leikskólastjóra á Krílakoti

Þann 22. febrúar síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýsta stöðu leikskólastjóra á Krílakoti. Tvær umsóknir bárust um stöðuna en umsækjendur voru:

Anna Kolbrún Árnadóttir , fagstjóri, Akureyri
Jóhannes Jakobsson, sölumaður, Reykjavík.

Á síðasta fundi fræðsluráðs Dalvíkurbyggðar þann 8. mars leggur ráðið til að Anna Kolbrún Árnadóttir, leik- og grunnskólakennari verði ráðin í starfið en hún hefur jafnframt lokið M. Ed gráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri.