Ráðning fjármála- og stjórnsýslustjóra

Eyþór Björnsson hefur verið ráðinn starf fjármála- og stjórnsýslustjóra (til afleysingar) en bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 6. desember 2007 að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Eyþór Björnsson. Eyþór hefur sinnt starfi bæjarritara Snæfellsbæjar síðastliðin 4 ár og þar á undan starfaði hann sem skrifstofustjóri Grundarfjarðarbæjar og starfaði sem bæjarstjóri um sinn. Eyþór er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands.