Ráðning deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar hjá Dalvíkurbyggð

Ráðning deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar hjá Dalvíkurbyggð

Þann 10. júlí sl. rann út umsóknarfrestur um stöðu deildarstjóra eigna- og framkvæmdardeildar hjá Dalvíkurbyggð. Steinþór Björnsson hefur verið ráðinn í starfið en alls bárust 16 umsóknir um stöðuna. 

Steinþór er með B.s. próf í jarðfræði frá Háskóla Íslands og einnig með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Steinþór hefur undanfarið ár unnið hjá Vegagerðinni á austurlandi sem verkefnastjóri á tæknideild þar sem hann fer með umsjón og eftirlit með nýframkvæmdum. Þar áður starfaði hann sem framleiðslusérfræðingur hjá Alcoa fjarðarál og sem þjónustustjóri hjá Vegagerðinni.

Steinþór er giftur Andreu Björk Sigurvinsdóttur og eiga þau 4 börn. Steinþór mun hefja störf í haust og við bjóðum hann velkominn til starfa hjá Dalvíkurbyggð.