Promens mótið í samhliða svigi

Skíðafélag Dalvíkur mun halda Promens mótið í samhliða svigi fimmtudaginn 26. mars en mótið er haldið í tengslum við bikarmót 15 ára og eldri sem haldið verður á Dalvík í lok mars. Það lítur allt út fyrir fjölmenna og spennandi keppni en nú þegar hafa yfir 60 manns skráð sig til leiks og ýmis stór nöfn þar komin á blað. Ákveðið hefur verið að gefa lokafrest á skráningar til kl. 20:00 í dag. 

Dagskrá

Kl. 18:00 Afhending númera og greiðsla keppnisgjalda í Brekkuseli
Kl. 18:30 Skráningarlistum lokað
Kl. 18:45 Skoðun hefst og stendur yfir í 10 mínútur
Kl. 19:00 Forkeppni í karlaflokki ef þörf er á
Kl. 19:30 Fyrsta umferð í kvennaflokki
Fyrsta umferð í karlaflokki
Önnur umferð í kvennaflokki
Önnur umferð í karlaflokki osfrv.....
Kl. 22:00 Verðlaunaafhending

Keppnisfyrirkomulag:

Stuðst verður við keppnisreglur FIS með fáeinum undantekningum.
Ef fleiri en 32 keppendur skila sér til leiks þá mun fara fram forkeppni til að fækka niður í 32ja manna ráshóp. Í forkeppni verða farnar tvær ferðir og ef keppendur vinna sitt hvora ferðina þá ræður tímamunur úrslitum.
Þegar í aðalkeppnina er komið verður farin ein ferð í fyrstu tveimur umferðum og sigurvegari hverrar viðureignar fer áfram í næstu umferð. Þegar í 8 manna úrslit er komið verða farnar tvær ferðir og ef keppendur vinna sitt hvora ferðina þá ræður tímamunur úrslitum um það hver fer áfram í næstu umferð. Þegar í úrslitarimmuna er komið þá verður farin þriðja ferðin til að knýja fram úrslit ef leikar standa jafnir að tveimur ferðum loknum.

Boðið verður upp á heitt kakó, kleinur og ekta Dalvískt flatbrauð á meðan á keppni stendur en kynnir verður Marinó Sveinsson ferðamálafrömuður.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki fyrir sig:

1. Verðlaun: 50.000 kr í reiðufé og Dalvíkursleði
2. Verðlaun: Árskort á skíðasvæðið í Böggvistaðafjalli árið 2010 og Dalvíkursleði
3. Verðlaun: Kraftkistill frá Promens

Sjá nánar á www.skidalvik.is