Prentun greiðsluseðla

Vegna mistaka prentuðust úr greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nú í febrúar á þá aðila sem eru með gjöldin í beingreiðslu eða boðgreiðslu, en þessir seðlar prentast venjulega ekki út.

Ekki verður nein breyting á innheimtunni, hún verður áfram eins og hún hefur verið hingað til.

Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum og munum við reyna að koma í veg fyrir þetta í framtíðinni.

Innheimtufulltrúi Dalvíkurbyggðar