Páskabingó - vinnur þú páskaeggið þitt

Barna- og unglingaráð fótboltans hjá UMFS heldur hið árlega páskabingó sitt laugardaginn 19. mars næstkomandi kl. 17:00 í hátíðarsal Dalvíkurskóla, gengið inn um aðalinngang.

Fjöldi glæsilegra vinninga að vanda.

Hvetjum alla til að mæta og eiga góða stund saman á laugardaginn og styðja þannig við fótboltastarf yngri flokka í Dalvíkurbyggð.

Óskum ykkur öllum gleðilegra páska og þökkum frábæran stuðning.

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS