Óvænt heimsókn á krílakoti

Óvænt heimsókn á krílakoti
Karíus og Baktus á Krílakoti í morgun

Krakkarnir á leikskólanum Krílakoti í Dalvíkurbyggð fengu óvænta heimsókn í morgun.  Þar voru mættir þeir bræður Karíus og Baktus og léku þeir og sungu fyrir börnin á meðan þau snæddu morgunverð en það er Leikfélag Akureyrar sem sýnir Karíus og Baktus um þessar mundir. Myndir frá heimsókninni má finna á síðu Krílakots sem og hér á forsíðu undir myndasafn.