Óskað er eftir tilnefningum til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2025.

Óskað er eftir tilnefningum til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2025.

Óskað er eftir tilnefningum til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2025.
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar og verður hægt að tilnefna til og með 30. nóvember 2025,

tilnefnt er í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar undir umsóknir.

Íþrótta- og æskulýðsráð hefur síðan árið 1996 veitt árlega viðurkenningu til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar að fengnum tilnefningum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar getur sá orðið sem stundar íþróttir með félagi sem starfar í Dalvíkurbyggð, eða hefur lögheimili í Dalvíkurbyggð en stundar íþrótt sína utan Dalvíkurbyggðar. Viðkomandi þarf að hafa náð 15 ára aldri á því ári sem tilnefnt er fyrir. Hér má sjá reglur um kjör á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar.

Hér má svo sjá þá aðila sem unnið hafa titilinn íþróttamaður Dalvíkurbyggðar.

Kjörinu er svo lýst á hátíðarfundi íþrótta- og æskulýðsráðs í janúar ár hvert.