Örn 5 ára

Örn 5 ára
 
Í dag, 18 október er Örn 5 ára. Af því tilefni bjó hann sér til glæsilega kórónu og bauð upp á ávexti í ávaxtastund. Þá flaggaði hann íslenska fánanum í tilefni dagsins og að sjálfsögðu var afmælissöngurinn sunginn fyrir hann. Við óskum elsku Erni okkar og fjölskyldu hans innilega til hamingju með afmælið.