Opnunartími Skrifstofa Dalvíkurbyggðar frá 14. júlí til og með 15. ágúst 2014

Nú stendur sumarleyfistími Íslendinga sem hæst. Það sama gildir um starfsmenn Skrifstofa Dalvíkurbyggðar en margir starfsmenn eru í sínum sumarleyfum þessa dagana.

Á tímabilinu 14. júlí til og mð 15. ágúst er opnunartíminn sem hér segir:

Skrifstofur verða opnar frá kl. 10:00 til kl. 13:00 alla virka daga. Opnunartími skiptiborðs er óbreyttur; alla virka daga frá kl. 8:00 til kl. 16:00 nema á föstudögum en þá er skiptiborðið opið til kl. 15:30.

Einnig viljum við benda á að á þessu tímabili er ekki óvanalegt að færri fréttir séu settar inn á vefmiðla sveitarfélagsins.