Opnun félagsmiðstöðvarinnar

Kæru vinir félagsmiðstöðin okkar opnar aftur eftir breytingar á mánudaginn 14.nóvember. Í tilefni á því blásum við til veislu og bjóðum öllum áhugasömum íbúum Dalvíkurbyggðar í heimsókn. Nýja félagsmiðstöðin verður vígð við hátíðlega athöfn í Víkurröst klukkan 17:00 – 18:30. Forseti bæjarstjórnar Guðmundur St. Jónsson mun klippa á borðann og í kjölfarið verður nýtt nafn félagsmiðstöðvarinnar kynnt. Ætlunin er að bjóða upp á vöfflur, kaffi og annað góðgæti.
 
Foreldrar hafa verið að bjóða fram aðstoð sína í bakstrinum og kunnum við þeim bestu þakkir. Ef fleiri vilja leggja sitt á vogarskálarnar þá erum við ævinlega þakklát.  Ef svo er þá mega þeir hinir sömu gefa sig fram á tölvupóstfanginu: magnus@dalvikurbyggd.is.