Opnun Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi

Bruggsmiðjan ehf., nýtt fyrirtæki í Dalvíkurbyggð, opnaði formlega sl. laugardag og var margt um manninn enda ekki á hverjum degi sem fyrirtæki af þessum toga opnar í Dalvíkurbyggð. Það eru þau Agnes Anna Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson sem reka Bruggsmiðjuna og eru þau jafnframt stærstu hluthafarnir. Afurð Bruggsmiðjunnar heitir Kaldi og er áætlað að bjórinn megi fá í verslunum ÁTVR núna í byrjun október.