Opinn fundur um snjóflóðamál í Ólafsfirði

Veðurstofa Íslands býður til opins fundar um snjóflóðamál sem haldinn verður í félagsheimilinu Tjarnarborg á Ólafsfirði miðvikudaginn 8. október kl. 17:30. Flutt verða þrjú erindi og auk þess er gert ráð fyrir spurningum og umræðum. Áætlað er að dagskráin taki um klukkutíma og eru allir velkomnir.


Störf snjóathugunarmanna. Gestur Hansson.
Á vegum Veðurstofunnar og Fjallabyggðar starfa snjóathugunarmenn á Siglufirði og Ólafsfirði. Gestur Hansson hefur annast snjóathuganir á Siglufirði frá árinu 2007. Hann hefur á þeim tíma öðlast víðtæka reynslu á viðfangsefninu sem hann segir frá í máli og myndum.


Ólafsfjarðarvegur og snjóflóðaspá Veðurstofu. Sveinn Brynjólfsson
Þó Múlagöng séu mikil öryggisbót fyrir vegfarendur á leið milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur þá liggur vegurinn enn um nokkra snjóflóðafarvegi. Síðastliðinn vetur hóf Veðurstofan að vakta snjóflóðahættu á leiðinni og skila daglega stöðumati og spá til Vegagerðarinnar. Sagt verður frá snjóflóðaaðstæðum á Ólafsfjarðarvegi og þessu nýtilkomna samstarfi Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.


Varnarvirki gegn ofanflóðum. Tómas Jóhannesson, Eiríkur Gíslason og Sigurður Hlöðversson.
Á undanförnum árum hefur verið ráðist í viðamiklar varnaraðgerðir gegn snjóflóðum bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Þessar aðgerðir eru hluti af umfangsmiklum framkvæmdum í byggðarlögum víða um land þar sem hætta er á ofanflóðum. Veðurstofan hefur fjölþættu hlutverki að gegna við undirbúning slíkra verkefna en Framkvæmdasýsla Ríkisins hefur umsjón með verklegum framkvæmdum sem eru á forræði viðkomandi sveitarfélaga. Á Siglufirði er unnið eftir áætlun um snjóflóðavarnir fyrir byggðina sem sett var fram árið 2001. Fjallað verður um ástæður þess að nauðsynlegt þykir að ráðst í þessar framkvæmdir, stöðuna nú og áætlanir næstu ára. Einnig verða sýnd dæmi um ofanflóðavarnir frá öðrum stöðum á landinu og frá öðrum löndum.

Þessi dagskrá er hluti árlegs samráðsfundar snjóathugunarmanna og snjóflóðavaktar Veðurstofunnar sem að þessu sinni fer fram í Fjallabyggð dagana 8.-10. október. Á vegum Veðurstofunnar og sveitarfélaga eru starfandi tuttugu snjóathugunarmenn víða um land og við upphaf snjóflóðavaktar, ár hvert, hittast þeir ásamt öðru ofanflóðastarfsfólki Veðurstofunnar og ræða um mál sem tengjast vöktun á snjóflóðum og skriðuföllum. Þar fá athugunarmenn einnig þjálfun og fræðslu.