Opin dagur í Menningasrhúsinu Bergi

Opin dagur á vegum Tónlistarskólans verður í Menningarhúsinu Bergi þriðjudaginn 10 febrúar kl. 14.00. Þar ætla nemendur skólans að koma fram í tilefni að degi tónlistarskólanna 2015. Opið verður til 17.00 og verður dagskránni tvískipt, yngri nemendur 1 - 4 bekkur frá kl.14,00 og svo eldri nemendur frá kl. 15. 30. Það er von okkar að sem flestir láti sjá sig og taki þátt í deginum með okkur. Júlli og Gréta verða síðan með eitthvað gómsætt á Þulu,  sem ætti að renna ljúft niður með góðri tónlist.