Opið Íþróttamót Hrings

Opið Íþróttamót Hrings verður haldið laugardaginn 21.maí á Hringsholtsvelli. Keppni hefst kl 10:30.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Opinn flokkur og ungmennaflokkur.

  • Tölt
  • 4-gangur
  • 5-gangur
  • Gæðingaskeið
  • 100m skeið (rafræn tímataka)

Barnaflokkur og unglingaflokkur

  • Tölt
  • 4-gangur


Skráningu skal lokið fyrir þriðjudaginn 17.maí kl. 20:00 á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net  - (á forsíðu hægrameginn neðst í valstiku)


Skráningargjald í opinn flokk og ungmennaflokk er kr 2.500 á fyrstu grein og kr 2.000 á næstu greinar.
Skráningargjald í barna og unglingaflokk er kr. 1.000 á grein.
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 19.maí kl 20:00


Athugið að ef ekki fæst næg þátttaka áskilur mótanefnd sér rétt á því að fella keppnisgreinar niður.


Mótanefnd Hrings