Opið ísmót hestamannafélagsins Hrings

Laugardaginn 2. febrúar nk. kl 12:00 mun hestamannafélagið Hringur standa fyrir opnu ísmóti. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:


Tölt opnin flokkur
Tölt opin flokkur minna vanir
(Mótshaldarar áskila sér rétt að sameina tölt flokka náist ekki skráning í annan hvorn flokkinn.)
100m. skeið fljúgandi start.


Skráningar skulu berast Bjarna Valdimarssyni á tölvupóstfang bjarni@dalvikurbyggd.is fyrir miðvikudag 30.janúar kl 20:00.


Skráningargjald á fyrstu skráningu pr.knapa er 2.500 kr. en 1.500 kr á næstu skráningar.


Keppni fer fram á Hrísatjörn