Opið hús í kvöld

Í dag mánudaginn 5.desember verður opið hús í félagsmiðstöðinni Tý. Þar verður í boði að fara í Fússball, borðtennis, PS3, spila, spjalla og hafa það náðugt. Allir þeir sem ætla á Samféshátíðina verða að koma með leyfisbréfið sem var afhent á kynningarfundinum undirritað af foreldri og unglingnum sjálfum. Húsið opnar klukkan 19:30 en lokar klukkan 22:00. Sjáumst.