Opið hús á Þulu veitingahúsi

Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar verður með opið hús í samstarfi með veitingastaðnum Þulu í Menningarhúsinu Bergi. Opni dagurinn verður Þriðjudaginn 11. febrúar og verður Þula opið frá kl. 15.00 – 17.00, fram koma nemendur og kennarar Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði og á Þulu verður hægt að kaupa kökur og kakó gegn vægu gjaldi. Án efa verður engin svikin af því að kíkja á okkur, hlusta á góða tónlist, borða góðar kökur og renna því niður með heitu kakói.