Opið hús

Opið hús

 

Það er bara hreinlega allt að gerast hér nyrðra. Undanfarna viku hefur mikið verið um dýrðir í Tý og fjölmargir mætt á viðburði okkar. Þessi vika verður stútfull af gleði og hlátri sem aldrei fyrr. Mánudaginn 21.nóvember ætlum við að hafa opið hús þar sem frelsið ræðir ríkjum. Hvað langar þig að gera? Spila Dixit? Spila Eggjadans? Fara í pool? Fara í borðtennis? Eða bara hanga með vinum þínum? Vertu þá ævinlega velkominn í félagsmiðstöðina þína. Týr lengi lifi.

Húsið opnar sem fyrr 19:30 og stendur gleðin yfir til klukkan 22:00.

p.s. Gyða ætlar að mæta og skora á alla í hólm í borðtennis. Hafið þið séð hvað hún er lipur stelpan?