Opið fyrir umsóknir í menningarsjóð

Opið fyrir umsóknir í menningarsjóð

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2017. Umsóknir þurfa að berast fyrir 3. apríl nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð/umsóknir“. Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Slóðir fyrir Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er hægt að finna inn á „Umsóknir“ á Mín Dalvíkurbyggð.

Styrkþegar ársins 2016 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2017.

Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs