Opið fyrir umsóknir í Menningar- og viðurkenningarsjóð

Opið fyrir umsóknir í Menningar- og viðurkenningarsjóð

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar- og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2020. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. mars nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á íbúagáttinni.

Við úthlutun er tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins.


Styrkþegar ársins 2019 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2020.

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs Gísli Bjarnson s. 460-4900, gisli@dalvikurbyggd.is