Önnur miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla

Í dag, miðvikudaginn 4. júní klukkan 17:15 er næsta stutta gangan á vegum Ferðafélags Svarfdæla. Þá verður ferðinni heitið upp í Melrakkadal undir styrkri leiðsögn Jóhönnu Skaftadóttur. Mæting er á bílastæði norðan Dalvíkurkirkju. Gangan er við hæfi allrar fjölskyldunnar en athugið að væntanlega er nokkur bleyta á þessari leið um þessar mundir.

ALLIR eru velkomnir.