Ömmu- og afakaffi

Ömmu- og afakaffi

Í dag buðu börnin í Kátakoti ömmum sínum og öfum í kaffi í leikskólanum. Þau buðu upp á bollur sem þau bökuðu sjálf í vikunni og kryddbrauð sem Ása bakaði og meðlæti, kaffi og vatn. Gaman var að sjá hversu margar ömmu, afar, langömmur og langafar sáu sér fært að mæta og eiga notalega stund með börnunum sínum, og auðvitað foreldra þeirra sem ekki höfðu aðgang að ömmu og afa í næsta nágrenni. Við þökkum öllum sem komu kærlega fyrir komuna til okkar í dag. Myndir frá atburðinum má finna á myndasíðunni okkar. Góða helgi.