Októbermót Blakfélagsins Rima

Októbermót Blakfélagsins Rima fer fram í Íþróttamiðstöð Dalvíkur um helgina. Mótið er nú haldið í þriðja sinn og fer þátttökuliðum stöðugt fjölgandi. Því þarf að byrja mótið á föstudagskvöldinu klukkan 19:00 með nokkrum leikjum. Klukkan 8:00 á laugardagsmorguninn verður mótinu fram haldið og spilað sleitulaust á öllum þremur völlum hússins til klukkan 18:00. 29 lið, allt frá Kópaskeri í austri til Sauðárkróks í vestri, taka þátt í mótinu sem spilað verður í þremur deildum kvenna og einni deild karla. Rimar eiga lið í öllum deildum, alls fimm lið. Tímasetningu á leikjum Rima má sjá á www.blak.is undir Októbermót Rima. Blakfélagið býður alla velkomna í íþróttamiðstöðina á meðan mótið stendur yfir.