Októbergleði í Siggabúð 21. okt

Fimmtudagskvöldið 21. október  milli kl. 19.00 – 21.00

Gler – Gull og Silfur – Sushi – Sítrónumsjör - Kertaljós – Spjall – Jólagjafahugleiðingar
Smakkaðu – snertu – pantaðu – lærðu - njóttu

Sigga svarar spurningum um glerlistina og  kynnir nýjar og sjóðheitar glervörur.
Valdi svarar spurningum um gull- og silfursmíðar  og sýnir nýja módelskartgripi og smíðar á staðnum. Júlli svarar spurningum um Sushi, skráir á námskeið, selur litla sushi bakka, sítrónusmjör og rauðlaukssultu.

Allir fá nafnið sitt í pott sem úr verða dregnir glæsilegir vinningar. Velkomin í Siggabúð við Skíðabraut.