Nýtt íbúðasvæði vestan Böggvisbrautar

Nýtt íbúðasvæði vestan Böggvisbrautar

Nýtt íbúðasvæði vestan Böggvisbrautar
Skipulagstillaga á vinnslustigi

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til svæðis sem merkt er ÍB-202 í aðalskipulagi og felst í að svæðið er stækkað um 1,3 ha suður fyrir vegslóða að Böggvisdal.
Aðalskipulagsuppdrátt má sjá hér.
Samhliða eru kynnt drög að tillögu að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarsvæði skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu rísi íbúðarbyggð með allt að 65 íbúðum í eins til þriggja hæða húsum, þ.e. einbýlis-, fjölbýlis-, par-, rað- og keðjuhúsum. Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.
Deiliskipulagstillöguna má sjá hér , greinargerð hér og skýringarmynd hér .
Skipulagsuppdrætti ásamt greinargerð má jafnframt nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur frá 21.maí til 5.júní 2025 og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir málum nr. 81/2024 og 479/2025.

Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillögurnar er veittur til 5.júní 2025.

Skipulagsfulltrúi