Nýtt íbúðarsvæði sunnan Dalvíkur
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til svæðis sem merkt er sem íbúðarsvæði 405-ÍB í gildandi aðalskipulagi og felst í því að svæðið er stækkað til norðurs um 1,2 ha.
Aðalskipulagsuppdrátt má sjá hér .
Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarsvæði skv. 41.gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu rísi íbúðarbyggð með allt að 60 íbúðum í fjölbreyttum húsnæðisgerðum. Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.
Deiliskipulagstillöguna má sjá hér , greinargerð hér og skýringarmyndir hér mynd 1, mynd 2, mynd 3, mynd 4, mynd 5.
Skipulagsuppdrætti ásamt greinargerð má jafnframt nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur frá 16.apríl til 4.júní 2026 og á Skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is undir málum nr. 85/2024 og 685/2025.
Athugasemdum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillögurnar er veittur til 4.júní 2026.
Skipulagsfulltrúi