Nýtt fyrirtæki í Dalvíkurbyggð - Keramikloftið

F.v. Gunnar Árni Jónsson, Monika Margrét Stefánsdóttir og Katrín Sigurjónsdóttir við opnun Keramiklo…
F.v. Gunnar Árni Jónsson, Monika Margrét Stefánsdóttir og Katrín Sigurjónsdóttir við opnun Keramikloftsins.

Nýtt fyrirtæki opnaði formlega í Dalvíkurbyggð í dag, en um er að ræða Keramikloftið sem opnað hefur verið á 2. hæð í Sjávargötu 4 á Árskógssandi. Gengið er inn við höfnina en stiginn liggur utan á húsinu.

Það eru þau Monika Margrét Stefánsdóttir og Gunnar Árni Jónsson, eða Mona og Gunni, sem eru eigendur og rekstraraðilar Keramikloftsins. Stefnt er að því að halda námskeið fyrir byrjendur auk sérstakra vinnustofa einhvern tímann í náinni framtíð og verður það auglýst sérstaklega. Þá verður einnig hægt að koma við á Keramikloftinu og kaupa sér t.d. styttur sem tilbúnar eru undir málun auk sérstakrar málningar.

Hér fyrir neðan má sjá myndir teknar á Keramikloftinu á opnuninni í dag.

Dalvíkurbyggð óskar þessu flotta fyrirtæki velfarnaðar í rekstri. Megi það verða langlíft og auðga fyrirtækjalíf í Dalvíkurbyggð.