Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita árið 2008, 100 milljónum króna í sjóð til atvinnuþróunar vegna niðurskurðar þorskheimilda og er nú verið að auglýsa eftir umsóknum.
Frekari kynning, m.a. á umsóknaferlinu, verður í fundarherbergi ráðhúss fimmtudaginn 31. janúar kl. 17.
Á dagskrá er:
- Kynning á mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar
- Sagt frá verkefnum sem munu sækja um styrk
- Fjóla Björk Jónsdóttir lektor við Háskólann á Akureyri mun fjalla um umsóknareyðublaðið og hvaða upplýsingar ættu að koma í hvern dálk.
- Umræður
Atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar