Nýsköpun í Dalvíkurskóla

Nýsköpun í Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli hóf kennslu í áhugasviði og nýsköpun á vorönn 2014. Þá var fókusinn á áhugasviðið og lauk önninni með metnaðarfullri kynningu nemenda á mörgum ólíkum áhugamálum. 

Síðustu vikur hafa nemendur hins vegar unnið að verkefni í nýsköpun. Nemendur unnu í tveggja til þriggja manna hópum og fengu það verkefni að hanna stól. Hóparnir drógu þrjá miða, einn sem sagði fyrir hvern stóllinn átti að vera og síðan tvö lýsingarorð sem lýstu eiginleikum stólsins. Dæmi um miða gat verið: kokkur, sígildur, hryllilegur. Öll nánari útfærsla var í höndum hópsins. Nemendur þurftu að búa til hugmyndaskissur, lokateikningu í hlutföllunum 1:5 og smíða líkan. Fyrir helgina héldu þeir síðan sýningu á lokafurðinni.