Nýr starfsmaður Fræðslusviðs

Guðrún Anna Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf hjá Fræðslusviði við málörvun bæði á Krílakot og Kátakoti.

Guðrún Anna er margmiðlunarhönnuður að mennt frá Business Academy West í Esbjerg og hefur einnig verið í ár í námi við kennslufræði. Guðrún Anna hefur reynslu að starfi bæði í leik- og grunnskólum og hefur starfað á báðum leikskólunum sem um ræðir. Við bjóðum Guðrúnu Önnu velkomna til starfa.