Nýr starfsmaður

Nú nýlega var gengið frá ráðningu á nýjum verkefnastjóra yfir félagsmiðstöðinni Pleizið. Í stöðuna var ráðinn Reykvíkingurinn Magnús S. Guðmundsson. Magnús hefur starfað hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur frá haustinu 2002. Þar hefur hann stýrt tveimur félagsmiðstöðvum og mörgum verkefnum.

Ég hef störf í Pleizinu í lok ágúst og hlakka til að takast á við veturinn með æsku Dalvíkur. Ný aðstaða mun verða opnuð við hátíðlega athöfn við fyrsta tækifæri.

Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega sendið mér póst á; magnus@dalvikurbyggd.is