Nýr framkvæmdastjóri Skíðasvæðis í Böggvistaðafjalli

Sigurgeir Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur, hefur verið ráðinn tímabundið í starf framkvæmdastjóra Skíðasvæðis í Böggvistaðafjalli. Hann kemur til starfa þriðjudaginn 4. september.

Umsóknarfrestur um starfið rann út 22. júlí síðastliðinn. Alls bárust sjö umsóknir um starfið.