Nýr aðstoðaleikskólastjóri á Kátakot

Nýr aðstoðaleikskólastjóri á Kátakot

Fyrir nokkru var auglýst laus staða aðstoðarleikskólastjóra á Kátakoti. Tvær umsóknir bárust um stöðuna frá Steinunni Guðnadóttur leikskólakennara og Þórunni Jónsdóttur grunnskólakennara

Búið er að ráða Steinunni Guðnadóttir sem aðstoðarleikskólastjóra á Kátakot og mun hún koma að skipulagsvinnu í júní og hefja svo störf strax eftir sumarfrí.

Steinunn hefur starfað sem leikskólastjóri á Þórshöfn frá 2004 og hefur því góða reynslu innan leikskóla. Hlökkum við til að fá hana til okkar og vinna með henni