Ný stjórn tekin við

Ný stjórn tekin við

 

Elsku börnin góð. Rétt í þessu var nemendaráð Dalvíkurskóla og félagsmiðstöðvarinnar Pleizið að kjósa sér stjórn. Baráttan var æsispennandi en það voru alls sjö manns í framboði. Hlutskarpast reyndist orkumikið tríó sem er staðráðið í að standa sig vel í vetur. Þau eru:

Júlía Ósk Júlíusdóttir en hún var kjörin formaður ráðsins.

Dagur Halldórsson en hann var kjörinn varaformaður ráðsins.

Úlfar Valsson var svo kjörinn ritari.

 

Við óskum þeim til hamingju með kjörið.