Ný myndavél

Ný myndavél

Þessa fínu myndavél fengum við að gjöf frá foreldrafélaginu í gær. Við áttum tvær vélar en önnur þeirra datt í gólfið fyrir tveimur mánuðum síðan og þoldi það ekki greyið. Þessi vél er höggþétt (ekki veitir af því) og ekki nóg með að hún sé vatnsheld, heldur er hægt að taka myndir á 10 metra dýpi! Sem sagt, akkúrat það sem okkur vantaði! Nú getum við aldeilis tekið myndir í rigningu án þess að hafa áhyggjur af því að skemma myndavélina :)

Færum við ykkur foreldrum bestu þakkir fyrir þessa frábæru gjöf :)